Góðann dag, Góðann dag glens og grín það er mitt fag hopp og hí
tralllalí upp á nefið nú ég sný.......... Já því er ekki að leyna
að maður er í góðu skapi þessa daganna. Það er mikið að gera í
músíkinni, búinn að bóka fullt af giggum í sumar, annars vegar ég
einn, með Halla eða með nýja projectinu sem við Halli, Valli,
Stebbi Gunn og annað gott fólk erum að fara að starta núna í næstu
viku. það verður algjör tær snilld

nú er komin smá reynsla á
íbúðina okkar Önnu Rósu og ég er að segja ykkur það að maður getur
eiginlega ekki hugsað sér betra, okkur líður rosalega vel hér, það
er samt eitt sem má batna það er að einhver láti sjá sig í
heimsókn

Það er reyndar þannig að ég er nú mjög sjaldan heima hjá
mér þessa daganna, það er bara svo brjálað að gera í söngnum að
maður sér varla konuna. En endilega ekki missa þolinmæðina, kíkið
við og tjekkið á okkur það er aldrei að vita hvort við séum heima,
þetta er bara spurning um að góma okku heima

Skólin í köben er
alveg frábær og er ég að fara núna 17. júni til 22. júni og það
verður magnað. ég er búinn að vera taka nemendur til mín og æft mig
að kenna þessa CVT tækni. Ef einhver hefur áhuga að koma í tíma að
þá hafa bara samband við mig og við plöggum það. Svo er það nú
bestu fréttirnar að ég fékk vinnu næsta haust í Tónlistarskólanum á
Akureyri sem er snilld. Starfið felst í því að ég fer á milli 6
leikskóla hér í bæ og kenni elstu 5-6 ára krökkunum tónlist sem er
tær snilld og ég hlakka mikið til

Svo rúsínan í pylsuendanum er
að ég þarf ekki að vinna yfir sumartímann, þá getur maður spilað
eins og vitlaus maður og það er bara magnað

jæja þá segi ég bara
gleðilegt sumar og ekki gleyma að njóta lífsins í botn Bestu
kveðjur Heimir